Hleð inn...

Fréttir

Bætt við dagsetning: 21.07.2010 Átakið Leggjum Kattholti Lið lokið

Átakinu "Leggjum Kattholti Lið" sem Gæludýr stóð fyrir í júnímánuði er lokið og söfnuðust 85.000 krónur sem í dag voru færðar Kattholti til ráðstöfunar.

Jafnframt versluðu viðskiptavinir Gæludýr.is u.þ.b. 90 kg. af kattafóðri sem þegar er komið í matardallana hjá kisunum í Kattholti.

Við hjá Gæludýr.is og starfsfólk Kattholts þökkum fyrir veittan stuðning og bendum jafnframt viðskiptavinum á að áfram verður hægt að kaupa fóður fyrir Kattholt á heimasíðu Gæludýr.is.  

Meira...

Bætt við dagsetning: 14.06.2010 Aukið vöruúrval á heimasíðu Gæludýr.is

Vöruúrvalið hjá Gæludýr.is hefur aukist jafnt og þétt að undanförnu í ýmsum vöruflokkum.

ProPlan

 Gæludýr.is býður nú upp á gæðafóðrið Pro Plan frá Purina en Purina er framleitt í Svíþjóð. Stefna Purina með Pro Plan er að bjóða fóður fyrir bæði ketti og hunda sem framleitt er úr hágæða hráefnum til að bæta líf þeirra.  

 

 

Meðal þess sem hefur bæst við er hunda og kattafóður frá Arion.Arion LogoArion fóðrið er framleitt af Trouw Nutrition International í Belgíu. Tvær línur af fóðri eru í boði frá Arion eða Standard og Supreme. Framleiðandinn hefur verið lengi að og leggur áherslu á framleiðslu gæða fóðurs á hagstæðu verði.

 

Natures Best

Nature's Best frá Hills er framleitt með gæludýrið þitt í fyrsta sæti. Fóðrið er unnið 100% náttúrulegum afurðum sem eru sérvalin. Dýrin verða ekki svikin af þessu einstaka fóðri.

 

 

Gæludýr.is er sífellt að þróa vöruframboð sitt og leggur áherslu á að bjóða viðskiptavinum sínum upp á gæðavörur. Allar ábendingar eru vel þegnar.

 

Meira...

Bætt við dagsetning: 31.05.2010 Leggjum Kattholti lið

Rekstur Kattholts hefur verið í járnum undanfarin misseri og því hefur Gæludýr.is ákveðið að leggja starfseminni lið með söfnunarátaki undir yfirskriftinni „Leggjum Kattholti lið“. Starfsemi Kattholts hefur löngu sannað sig á þeim tæpum 20 árum sem rekstur þess hefur staðið yfir og ófáir kettir og eigendur sem notið hafa góðs af velvilja kattavinanna á þeim bænum. Róðurinn hefur hinsvegar þyngst til muna undanfarið vegna hækkandi verðs á fóðri og öðrum aðföngum sem reksturinn þarfnast en þeir eru margir þrátt fyrir að um sjálfboðavinnu sé að ræða og því orðið tvísýnt um framtíð Kattholts. Af þessum sökum mun Gæludýr.is fara af stað með að selja kattaleikfang, 3 mýs í poka, á 1.000 kr en upphæðin rennur óskipt til starfsemi Kattholts.  Átakið mun hefjast 1.júní næstkomandi og standa yfir út júnímánuð.

Kaupa mýsnar til styrktar Kattholti hér!

Meira...

Bætt við dagsetning: 08.04.2010 Ný verslun í Skútuvogi 13, opnar í dag kl 12
Gæludýr.is opnar fyrstu verslun sína í dag kl 12. Verslunin er staðsett í Skútvogi 13, beint á móti Húsasmiðjunni við hliðina á Bónus. Sömu frábæru verðin og eru í vefversluninni. Við bjóðum alla viðskiptavini okkar hjartanlega velkomna í nýju verslunina.
Bætt við dagsetning: 18.02.2010 10% "1000 vina" afsláttur í vefverslun fram á föstudag
Bætt við dagsetning: 18.02.2010 Búið að draga út vinningshafa í "1000vina" leiknum okkar á Facebook
Bætt við dagsetning: 09.02.2010 Dregið hefur verið út í spurningakeppni Gæludýr.is í Facebook
Dregið hefur verið út í spurningakeppni Gæludýr.is sem hefur verið í gangi undanfarið á Facebook. Hinn heppni vinningshafi er Lena Mist Skaptadóttir og óskum við henni innilega til hamingju með 10.000 krónu gjafabréfið semhún vann. Vonandi kemur það sér að góðum notum.
Bætt við dagsetning: 01.02.2010 Facebook spurningakeppni Gæludýr.is - Vegleg Verðlaun!

Nýlega skráðum við hjá Gæludýr.is okkur á Facebook og höfum við núna náð u.þ.b. 200 vinum á nýrri síðu okkar hér.

Nú höfum við formlega hafið fyrstu spurningarkeppni Gæludýr.is og getið þið fengið upplýsingar um hvernig á að taka þátt í henni á Facebook síðu okkar.

Með kveðju, Gæludýr.is

Meira...

Bætt við dagsetning: 12.01.2010 Bilun í netþjóni - komið í lag
Bilun kom upp í netþjóni sem hýsir vefverslun Gæludýr.is. Verið var að flytja verslunina á nýjan netþjón helgina 9-10 janúar en flutningarnir virkuðu ekki betur en svo að verslunarkerfið datt út að hluta og þar af leiðandi var ekki hægt að framkvæma pantanir á sumar tegundir/útgáfur netvafrara. Allt er komið í lag í dag þriðjudaginn 12. janúar og við vonum að þessi bilun hafi valdið sem mínnstum óþægindum hjá viðskipavinum okkar.

Meira...

Bætt við dagsetning: 30.12.2009 Breytingar á virðisaukaskatt um áramót

Nú um áramót taka ný lög um virðisaukaskatt gildi. Samkvæmt þeim breytingum sem verða mun Gæludýr.is neyðast til að hækka núverandi virðisaukaskatt úr 24,5% upp í 25,5%. Af þessum sökum er það því miður óhjákvæmilegt að verð á heimasíðu okkar mun hækka sem um því nemur frá og með 1. janúar 2010.

Okkur hjá Gæludýr.is er mikið í mun að halda vöruverði sem lægstu og því teljum við þessar hækkanir þjóna markmiðum okkar afar illa. Við vonum engu að síður að viðskiptavinir okkar sýni þessum verðbreytingum skilning en við munum engu að síður leggja allt okkar kapp á að leiðrétta verðið með öðrum leiðum.

Með áramótakveðju,
Starfsfólk Gæludýr.is