Þurrfóður fyrir hunda á öllum aldri frá Acana
- Með lambakjöti, önd, eggjum, villtum fiski og kalkúni.
- Fyrir alla aldurshópa
- Hátt hlutfall af fersku kjöti sem gefur frábært bragð.
- 70% kjöt og 30% kolvetni (úr grænmeti, ávöxtum og jurtum).
- Lágt hlutfall kolvetna gerir þyngdarstjórnun auðveldari.
- Wholepray hlutföll - hlutfall kjöts, innmatar og brjósks er líkt og í náttúrunni.
- Unnið úr hráefni sem flokkast hæft til manneldis.
- Acana leggur áherslu á sjálfbærar fiskveiðar úr villtum stofnum ásamt því að notast við egg úr hreiðrum og fuglakjöt af lausagöngudýrum.
- Með lambakjöti, önd, eggjum, villtum fiski og kalkúni.
Næringargildi:
Prótín 35%, fita 17%, aska 8%, trefjar 6%, raki 12%, kalk 1,7%, fosfór 1,2%, Fitusýrur: Omega-6 2,3%, Omega-3 1%, DHA 0,2%, EPA 0,2%, glúkósamín 600mg/kg, kondritín 800mg/kg.
Innihaldsefni: Hrátt grasfóðrað lambakjöt (8%), ferskt andarkjöt (8%), egg úr hreiðrum (8%), lambakjötmjöl (8%), mjöl úr heilli síld (7%), kalkúnamjöl (7%), heilar grænar baunir, heilar rauðar linsubaunir, heilar kjúklingabaunir, villtveidd fersk gedda (4%), hrá lambalifur (4%), ferskur innmatur úr önd (lifur, hjörtu og nýru) (4%), ferskt kalkúnakjöt (4%), lambafita (4%),heilar grænar linsubaunir, heilar pintobaunir, heilar gular baunir, sólþurrkaður refasmári, ufsaolía (2%), linsubaunatrefjar, þurrkað lambabrjósk (1%), hrár lambamagi (1%), þurrkaður brúnn þari, ferskt grasker, ferskt moskusgrasker, ferskar næpur, ferskt grænkál, ferskt spínat, ferskt sinnepskál, ferskt næpukál, ferskar gulrætur, fersk Red Delicious rauð epli, ferskar Bartlett perur, frostþurrkuð lifur (lamba og andar)(0,1%), fersk trönuber, fersk bláber, kaffifífilsrót, túrmerikrót, mjólkurþistill, krókalapparót, lofnarblóm, læknastokkrósarrót, rósaber, góðgerlar (enterococcus faecium).
Aukefni:
Inniheldur einnig góðgerla (Enterococcus faecium)
Snefilefni: Sink, kopar og E-vítamín.
Andoxunarefni: (náttúrulegt) tókóferólþykkni, E-vítamín og rósmarínolía.
Heimasíða framleiðanda með ítarlegri upplýsingum