Fóður í áskrift
Um fóður í áskrift
Fóður í áskrift er hugsuð fyrir þá sem vilja spara sér sporin og fyrirhöfn við það sem við skilgreinum sem vanakaup. Vanakaup geta verið allt frá fóðri fyrir gæludýrin í kattasand, vítamín, bætiefni eða hvað sem gæludýrið þitt þarfnast með reglulegu millibili.
Greiðslufyrirkomulag
Það kostar ekkert að skrá sig í fóður í áskrift, það er svo einfalt! Hver áskriftarsending er sérstök pöntun sem þýðir að þú greiðir fyrir hverja pöntun fyrir sig en ekki óafgreiddar pantanir fram í tímann. Þú getur svo valið hvaða greiðsluleið hentar þér hverju sinni.
Þú ákveður daginn - við sjáum um rest
Eftir að þú hefur skráð þig sendum við þér pöntunina á uppgefnum degi.
Daginn sem þú átt von á sendingu frá okkur sendum við þér tölvupóst til staðfestingar að við komum með vörurnar milli kl 17-21 þann dag.
Pöntunin er ekki bindandi þannig að þegar þér berst pósturinn frá okkar þá er ekkert mál að senda okkur svarpóst og breyta pöntun eða hætta við.