Umhverfis- og samfélagsstefna
Við leggjum afar mikla áherslu á að lifa í sátt og samlyndi við okkar samfélag og umhverfi.
Okkar aðal markmið er að bjóða öruggar gæludýravörur sem auðga líf gæludýra og eigenda þeirra.
Umhverfismál
Við tökum tillit til umhverfismála í starfsemi okkar og vinnum í anda sjálfbærrar þróunar og stuðlum þannig að betra umhverfi fyrir menn og dýr.
Við leggjum áherslu á að nota umhverfisvæn hreinsiefni þegar hægt er.
Við tryggjum að lagakröfum á sviði umhverfismála sé fullnægt og munum setja okkur strangari kröfur þar sem við á.
Við leggjum okkur fram við að efla umhverfisvitund starfsfólks og áhuga þeirra á mikilvægi umhverfismála með reglulegri þjálfun.
Við leggjum áherslu á góða umgengni við umhverfið, endurnota og endurvinna það sem hægt er. Við flokkum úrgang og komum honum til endurvinnslu.
Við nýtum rafrænar lausnir til að minnka notkun á pappír.
Við leggjum áherslu á að bjóða upp á umhverfisvænar vörur fyrir öll gæludýr.
Við lágmörkum matarsóun með góðu samstarfi við okkar birgja og sterkri vörustýringu.
Samfélagsábyrgð
Við leggjum okkur fram við að stuðla að jákvæðri gæludýramenningu á Íslandi með því að bjóða vörur sem auðga líf gæludýra og fræðslu til starfsmanna sem þeir miðla áfram til viðskiptavina.
Við styðjum verkefni sjálfboðasamtaka á borð við Dýrahjálp Íslands, Villikatta og Villikanína með söfnun framlaga, safnana á fóðri og fylgihlutum og bjóðum þeim vettvang til að kynna starfsemi sína á stærri viðburðum okkar.
Við leggjum áherslu á að bjóða starfsmönnum okkar gott og öruggt vinnuumhverfi og að jafnrétti og umburðarlyndi leiki lykilhlutverk í bæði daglegu starfi og framtíðarsýn.
Fræðsla, þjálfun og þekking er mikilvægur hluti af okkar starfsemi. Starfsmenn fá fræðslu sem miðar að því að auka hæfni þeirra og þekkingu.
Samfélagssjóður Gæludýr.is
Markmið Gæludýr.is er að auðga líf gæludýra á Íslandi.
Gæludýr.is leggur áherslu á samfélagsábyrgð og bætta gæludýramenningu og setti því á laggirnar snemma árs 2022 sérstakan styrktarsjóð gæludýra.
Með það að leiðarljósi veitum við styrki til verkefna á sviði dýraverndar, verkefna sem snúa að bættum aðbúnaði gæludýra og verkefna sem auðga og lengja líf gæludýra.
Tekið er við umsóknum um styrki bæði frá einstaklingum og félagasamtökum og skulu umsókninni fylgja neðangreindar upplýsingar.
Kynning á verkefninu/ástæða umsóknar
Upphæð sem óskað er eftir
Tengiliðaupplýsingar
Tekið er við umsóknum allt árið.
Aðeins er tekið við umsóknum á netfangið styrkur@gaeludyr.is
Hér má sjá kynningar á þeim verkefnum sem hafa hlotið styrk
Villkanínur
Gæludýr.is tekur þátt í verkefninu björgun kanína í Elliðaárdal. Aðkoma Gæludýr.is að verkefninu er þríþætt.
- Styrkur til Villikanína sem nýtist m.a. til fóðurkaupa
- Miðlar Gæludýr.is nýttir til að vekja athygli á verkefninu
- Gæludýr.is setur upp sérstaka undirsíðu í vefverslun þar sem viðskiptavinir geta keypt vörur til styrktar verkefninu - sjá hér
Kanínurnar dvelja í svokölluðu kanínukoti sem félögin hafa sett upp í samvinnu við Dýraþjónustu Reykjavíkur. Kanínurnar munu vera í kotinu þar til að þær fara á fósturheimili eða framtíðarheimili en félögin óska eftir aðstoð almennings varðandi ýmis aðföng fyrir þær á meðan þær dvelja þar. Mikilvægt er að kanínur fái örvun og afþreyingu á meðan þær eru í kotinu og óskum við eftir aðstoð dýravina.


