Beint í efni
Mínar Síður

21. september 2023

Að fóðra kanínur

Rangt mataræði getur orsakað margvísleg heilsufarsvandamál hjá kanínum. Þær eru eingöngu jurtaætur og éta ýmsar plöntur í náttúrunni. Þó svo að kanínur kjósi helst gras og laufblöð þá eru þær færar um að melta matvæli sem innihalda meiri trefjar og geta lifað á strjálum gróðri. Kanínur þurfa EKKI hitaeiningaríkt fæði þar sem meltingarfæri þeirra hafa þróast þannig að þær geta brotið niður trejfar og fengið úr þeim næringarefni. 

Tennur þeirra eru í stöðugum vexti og slitna við að mylja niður fæðið og skera í gegnum það áður en það fer inn í meltingarveginn.

Kanínur láta frá sér tvær tegundir af úrgangi, harðar hægðir og mjúkar.  Kanínur éta mjúku hægðirnar, litla köggla sem kallast ceacotropes, og það er þeim rík uppspretta af næringarefnum. Ef þessi meltingarhringrás er rofin veldur það truflun á bakteríuflóru í meltingarvegi kanína og hjá mjög ungum kanínum getur slíkt jafnvel valdið dauða þar sem að þær hafa ekki náð að koma sér upp heilbrigðri þarmaflóru.

Og hvað er svo best að gefa kanínunni að borða?
Besta fóðrið fyrir kanínur er hey, gras og grænblaða grænmeti þar sem það er bragðgott, hitaeiningasnautt, trefjaríkt og heldur tönnunum í skefjum. Ferskt grænt grænmeti er góður kostur, t.d. Romaine salat , kál og gulrótakál. Hafa ber í huga að þegar ný fóðurtegund er kynnt til sögunnar í mataræði kanínu þá getur það leitt til þess að meira verður um mjúku hægðirnar hjá kanínunni, það má ekki rugla því saman við niðurgang. Þvert á móti er það alveg eðlilegt og heilbrigt. 

Hey og trefjar
Meltingarvegur kanína er sérstaklega lagaður að því að brjóta niður trefjaríkan gróður.  Hey inniheldur þær trefjar sem eru meltingarkerfinu nauðsynlegar svo það haldist heilbrigt og virkt. Heyið vinnur á móti ýmsum alvarlegum heilsutengdum vandamálum og hjálpar til við að halda tönnum heilbrigðum. 

Hvers konar hey?
Alfaalfa hey er best fyrir kanínuunga vegna þess að það er hitaeiningaríkt og það þarf unginn á vaxtaskeiði sínu. Þegar kanínur ná sjö mánaða aldri ætti smám saman að skipta yfir í vallarfoxgras eða hafragras.

Hitaeiningasnauð en trefjarík fæða er GÓÐ, hitaeiningarík en trefjasnauð fæða er SLÆM. Kanínur á trefjasnauðu fæði hafa tilhneigingu til að láta frá sér meira af mýkri saurnum (caecotropes) og hann festist þá gjarnan í feldinum í kringum endaþarminn, sérstaklega ef feldurinn er dúnkenndur. Ef þetta fæði er að auki ríkt af hitaeiningum, eins og margar nagdýrablöndur eru, þá er kanínan líklegri til þess að vera í ofþyngd og þ.a.l. ófær um að ná í endaþarmsop sitt til að éta mjúku saurkögglana. Afleiðingin er illa lyktandi saurklessa undir skottinu sem er ógeðfellt bæði fyrir kanínuna, sem og eigandann. Í ofanálag verður húðin aum og illa lyktandi og getur laðað að sér flugur. 

Er samhengi á milli tannvandamála og fóðurs?
Tannvandamál eru sennilega algengasta ástæða þess að leita þurfi til dýralækna með kanínur. Dýralæknar eru sammála um að tannvandamál megi, a.m.k. að hluta til, rekja til kanínu/nagdýrablanda sem eru að mestu kornmusl. Þó svo að þessar blöndur séu ódýrar, bragðgóðar og þægilegar þá hæfa þær kanínum engan veginn. Blöndurnar eru hitaeiningaríkjar, trefjasnauðar og þó að framleiðandi haldi því fram að í blöndunni sé jafnvægi í næringarinnihaldi hráefnisins þá veiða margar kanínur einfaldlega upp ákveðna bita. Ef vöxtur tanna á að vera reglulegur þá verða kanínur að fá réttu næringuna. Þegar hún inniheldur ekki allt sem  hún ætti að innihalda þá hefur það áhrif á byggingu tanna og leiðir til heilsutengdra vandamála. Þess utan þá geta kanínur með lélegar tennur ekki snyrt sig almennilega en það getur leitt til þess að þær fá maura, sem veldur þeim kláða. Kanínan getur ekki borðað hey ef tennurnar eru lélegar og þá minnkar hlutfall trefja í mataræðinu sem veldur meltingartruflunum, eins og áður var minnst á. Af þessum sökum má gera ráð fyrir því að tennur kanínu séu heilbrigðar, borði hún mikið af heyi. 

Vatn
Kanínur þurfa auðvitað óheftan aðgang að fersku drykkjarvatni. Best er að hafa það í skál eða flösku. 

Dagsetning
21. september 2023
Deila