
Um Gæludýr.is
Gæludýr.is er lágvöruverðsverslun með gæludýravörur sem rekin er bæði á netinu sem og í hefðbundinni verslun. Verslunin var í upphafi eingöngu rekin á vefnum en til að auka þjónustu við viðskiptavini var ráðist í að opna fyrstu yfirlýstu lágvöruverðsverslun með gæludýravörur að Skútuvogi 13. Það var svo í lok október 2010 að Gæludýr.is lokaði versluninni í Skútuvogi og opnaði 500 m2 stórmarkað með gæludýravörur að Korputorgi. Í nóvember 2011 opnaði Gæludýr.is annan 500 m2 stórmarkað að Smáratorgi 1 í sameiginlegri verslun með DOMTI eða þar sem ELKO var áður til húsa. Þann 28 febrúar 2017 opnaði Gæludýr.is nýja verslun í Helluhrauni í Hafnarfirði. 2018 opnaði verslunin á Fiskislóð í Reykjavík og í september 2020 stórverslun okkar að Baldurnesi á Akureyri.

Traust, hagkvæmni og þjónusta
TRAUST
Við vitum að TRAUST er forsenda viðskipta milli okkar og viðskiptavina og heiðarleiki er grundvöllur þess.
Við leggjum allt kapp á að standa við öll gefin loforð þannig að viðskiptavinir okkar geti TREYST því að allt standist.
HAGKVÆMNI
Við vitum að við þurfum að vera HAGKVÆM í okkar rekstri til að skila viðskiptavinum okkar sem lægstu vöruverði.
Við skipuleggjum okkur og reksturinn þannig að athafnir okkar skili HAGKVÆMRI niðurstöðu í þágu allra.
ÞJÓNUSTA
Við vitum að góð ÞJÓNUSTA fellst í því að uppfylla þarfir og væntingar viðskiptavina okkar.
Við hlustum á óskir viðskiptavina okkar og tökum tilmælum vegna þess að á því byggist góð ÞJÓNUSTA.
Starfsfólk Gæludýr.is leggur höfuðáherslu á gildi sín og eru þau höfð að leiðarljósi í öllum aðgerðum þess.
Gæludýr.is býður upp á ókeypis heimsendingu á höfðuborgarsvæðinu og kemur vörunni á flutningsaðila fyrir fólk á landsbyggðinni.
Markmið Gæludýr.is er að tryggja gæludýraeigendum vörur fyrir gæludýrin á hagstæðu verði.
Gæludýr.is er rekið af Waterfront ehf, kt: 710107-1490.
Reikningsnúmer okkar er: Banki 0349 - HB. 26 - Reikningur 001490