Beint í efni
Mínar Síður

21. september 2023

Umönnun eldri hunda

Það á fyrir okkur öllum að liggja að eldast og þeirri þróun fylgja gjarnan hárfínar breytingar sem verða jafnt og þétt. Hjá hundunum okkar er þetta ekkert öðruvísi og það er áríðandi að við, sem eigendur, séum meðvituð um þarfir eldri hunda og að við höfum þekkingu á þeim aldurstengdu vandamálum sem þeir geta þurft að glíma við. Þannig getum við tryggt lífsgæði þeirra lengur. Öldrun er náttúrulegt ferli og mörg merki öldrunar eru einmitt afleiðingar þessa náttúrulega ferlis.

Hundategundir eldast mishratt og þar skiptir stærðin oft höfuðmáli. Því miður er það svo að áhrifa öldrunar hjá stærri tegundum getur farið að gæta strax upp úr fimm ára aldri á meðan hundar af smærri tegundum, sem lifa að jafnaði mun lengur, fara ekki að sýna einkenni fyrr en eftir að þeir hafa náð tíu ára aldri. Það er mikilvægt að vera vakandi gagnvart þessu þegar lagt er mat á hvort þær breytingar sem við merkjum geti tengst því að hundurinn sé að eldast. Almennt séð er hundur sem orðinn er eldri en sjö ára talinn vera “senior”.

Eftirfarandi eru algeng merki öldrunar hjá hundum: 

  • skert hreyfigeta
  • skert virkni
  • breyting á matarlyst
  • breytingar á líkamsbyggingu,  stundum greinilegt þyngdartap eða –aukning.
  • breytingar á feldi og húð
  • skert heyrn og sjón
  • breytingar á hegðun

Ákveðnir sjúkdómar og líkamsástand eru tíðari hjá eldri hundum og margir þeirra valda dæmigerðum einkennum sem þ.a.l. eru oftar sýnileg hjá eldri hundum en yngri.

Meðal þeirra má telja: 

  • aukinn þorsti (einkenni nýrnasjúkdóma og sumra hormónasjúkdóma, sykursýki þeirra algengastur)
  • stirðleiki og helti (einkenni slitgigtar)
  • þyngdaraukning (einkenni skjaldkirtilssjúkdóma)
  • minnkuð matarlyst (einkenni tannsjúkdóma, líffæratruflana og sumra æxla)
  • hárlos (einkenni sumra hormónavandamála)
  • andremma (einkenni tannsjúkdóma)
  • uppköst og/eða niðurgangur (einkenni skertrar starfsemi í líffærum og þarmasjúkdóma)
  • hægðatregða (einkenni sjúkdóma í blöðruhálskirtli karldýra og þarmasjúkdóma)
  • breytingar á hegðun (einkenni elli- og vitglapa)
  • blinda (einkenni gláku og annara augn- eða taugasjúkdóma)
  • flog (einkenni skertrar starfsemi í líffærum og taugasjúkdóma)

Vissulega rúmar þessi upptalning ekki öll einkenni og sjúkdóma sem finna má hjá eldri hundum. Listinn sýnir okkur, hins vegar, að mörgum þeirra einkenna sem koma fram vegna þessara sjúkdóma er auðvelt að rugla saman við merki „almennrar öldrunar“, þegar þau í raun geta gefið til kynna undirliggjandi veikindi eða sjúkdóm. Það er brýnt að við séum meðvituð um þessar breytingar og mikilvægur þáttur góðrar umönnunar þegar hundarnir okkar eldast.

Ábendingar er varða umönnun eldri hunda: 

  • regluleg snyrting
  • skoða klær reglulega og snyrta þegar þörf krefur
  • tryggja reglulega hreyfingu sem er þægileg fyrir hundinn og stuðlar að bættri heilsu liða og vöðva
  • sjá til þess að hundurinn eigi hlýtt og þægilegt fleti á þeim hluta heimilisins þar sem ró ríkir
  • tryggja frjálsan aðgang að ótakmörkuðum birgðum af vatni
  • tryggja rétt fæði og taka þar tillit til aldurs hundsins og aldurstengds ástands. Þetta er vegna þess að eldri hundar hafa aðra næringarþörf en þeir yngri
  • vigta hundinn á mánaðarfresti og halda skrá yfir þyngdarbreytingar
  • reglulegar heimsóknir til dýralæknis eru mikilvægar.

Með því að taka mið af þessum lista geturðu hjálpað hundinum þínum að hafa það náðugt í ellinni. Listinn getur auk þess komið að notum við að greina vandamál tengd sjúkdómum þegar þeir eru á byrjunarstigi. Það er lykilatriði að leita ráða hjá dýralækni um leið og einkenna, sem þú hefur áhyggjur af, verður vart. Mikilvægt er að muna að margar hinna algengari breytinga sem verða með hækkuðum lífaldri geta gefið til kynna ástand eða sjúkdóma sem þarf að skoða frekar og meðhöndla. 

Ef þú ert með einhverjar spurningar þá skaltu ekki hika við að hafa samband við starfsfólk dýralæknastofunnar okkar í versluninni eða í gegnum tölvupóst, við tökum við fyrirspurnum og aðstoðum þig. 

Dagsetning
21. september 2023
Deila