

Sjálfvirkir fóðurskammtarar – skammtaðar máltíðir, án fyrirhafnar!
Gerðu lífið bæði einfaldara og skemmtilegra með sjálfvirkum fóðurskammtara sem sér um máltíðirnar fyrir þig. Sjálfvirkir fóðurskammtarar tryggja að gæludýrin þín fái ferskan, rétt skammtaðan mat reglulega yfir daginn – líka þegar dagurinn fer á flug. Ekkert stress, engar áhyggjur, bara fullkomið mataröryggi fyrir þinn besta vin.
Þú stýrir stillingunum beint úr símanum og tækið skammtar jafnt og þétt yfir daginn, kemur í veg fyrir ofát og fær loðbarnið til að bíða spennt í stað þess að nöldra. Fyrir enn meiri hugarró þá bjóða sum tæki jafnvel upp á að tala við gæludýrin eða fylgjast með þeim í gegnum myndavél — þá veistu alltaf hver er að borða og hversu mikið.
Ef þú vilt hamingjusamara dýr og minna vesen – þá er þetta tækniuppfærslan sem þú og gæludýrið eigið skilið.

Stöðugt aðgengi að fersku rennandi vatni
Ferskt vatn er ekki bara mikilvægt – það er lífsnauðsynlegt fyrir bæði hunda og ketti. Góður vatnsbrunnur veitir gæludýrinu þínu stöðugt aðgengi að hreinu, rennandi vatni sem hvetur það til að drekka oftar og viðhalda góðri heilsu. Kettir eru sérstaklega latir við vatnsdrykkju en ef þeir fá ekki nægan vökva eiga þeir á hættu að þróa með sér alls konar þvagrásarvandamál. Rennandi vatn vekur eðlishvatir þeirra, eykur forvitni og gerir vatnsdrykkjuna meira spennandi.
Vatnsbrunnar halda vatninu sífellt á hreyfingu, sía burt óhreinindi og tryggja að hver sopi sé eins ferskur og sá fyrsti. Með hljóðlátum dælubúnaði og stílhreinni hönnun passar brunnurinn inn á hvaða heimili sem er, án fyrirhafnar og án þvælings með stanslaust enduruppfylltar skálar.

Segðu bless við óboðna kisugesti
Kattalúga er ekki það sama og kattalúga! Það er til mikið úrval af kattalúgum, allt frá lúgum með einfaldri læsingu, að lúgum sem hleypa aðeins útvöldum kisum inn eða út.
Finnst kettinum þínum eða hundinum gaman að fara út í garð eða á pallinn? Nú er enn auðveldara fyrir ferfætta vin þinn að komast út án þess að þurfa að opna dyrnar. Kattalúgur með örmerkjalesara tryggja að bara þínar kisur komist inn og koma í veg fyrir óboðna kisugesti sem laumast inn og stela mat.
Með snjöllustu lúgunni getur þú líka stillt hvenær gæludýrin þín mega fara út. Gegnsæ og hljóðlát lúga rafhlöðuknúnu gæludýralúgunnar opnast aðeins þegar örmerkið eða RFID-ól nálgast – og tvöfaldur læsingarbúnaður veitir aukið öryggi. Þú getur forritað lúguna fyrir allt að 32 dýr ef þörf krefur.

Réttur matur fyrir rétta kisu
SureFeed Microchip Pet Feeder er fullkomið fyrir heimili þar sem eitt dýr þarf sérfæði, annað stelur og það þriðja er með ofurviðkvæma meltingu. Snjallskálin sér til þess að rétt kisa fái réttan mat og þú getur hætt að hafa áhyggjur af fóðurstuldi eða óhóflegu narti.
Skálin greinir hvaða gæludýr nálgast með innbyggðum örmerkjalesara og opnar lokið sjálfkrafa fyrir réttan heimilismeðlim. Svo lokar hún aftur og heldur matnum ferskum og friðsælum frá óviðkomandi trýnum.

Snyrtistofa heima í stofu
Trixie Grooming Kit er praktískt og þægilegt snyrtisett sem hjálpar þér að halda feldi hundsins hreinum, snyrtum og vel viðhöldnum – allt heima í stofu þar sem gæludýrinu líður best. Settið hentar sérstaklega vel til reglulegrar umhirðu og er frábær kostur fyrir hunda sem þurfa létta klippingu eða mótun á milli heimsókna á snyrtistofu.
Með notendavænu gripi, þægilegri hönnun og áreiðanlegri frammistöðu tryggir settið bæði þér og hundinum rólega og þægilega upplifun. Hljóðlátur gangur og góð stjórnun gera það auðvelt að vinna nákvæmlega, án óþarfa truflunar eða stress.
Trixie Grooming Kit er einföld og örugg lausn fyrir hundaeigendur sem vilja hafa umhirðu hundsins í góðu horfi – án mikillar fyrirhafnar. Niðurstaðan: snyrtilegri hundur, minna hár um allt húsið og ánægjulegri dagleg umhirða.

Snjallklósett fyrir aukin þægindi
Þú getur kvatt daglegan mokstur, en snjallklósettið frá Trixie hreinsar sig sjálft, hvort sem þú velur handvirka, tímasetta eða fullsjálfvirka hreinsun, allt stjórnað beint úr símanum. Það skráir þyngd og notkun kattarins, svo þú getur auðveldlega fylgst með klósettferðum og spottað breytingar á tíðni – sem getur oft bent til undirliggjandi heilsufarsvandamála.
Innbyggðir skynjarar tryggja að tromlan snúist aldrei meðan kisan er inni og stöðva hreinsun um leið og kisa nálgast. Engir hlerar eða lokur eru sem kisa getur fest sig í og því er klósettið einstaklega öruggt.
Minna vesen, meira hreinlæti – og hamingjusöm kisa.